Höskuldur Ólafsson, forstjóri Arion banka er gestur Páls Magnússonar í þjóðmálaþættinum Þjóðbraut í kvöld, en þar útskýrir hann hvaða mistök forsvarsmenn bankans gerðu við sölu á hlut hans í Símanum.
Aðferðin við sölu á hlut Arion banka í Símanum hefur verið vægast sagt umdeild síðustu vikur, en þar fengu sérvaldir aðilar að kaupa í síðarnefnda fyrirtækinu á öðru gengi en almennt var í boði. Forkólfar bankans hafa nú viðurkennt mistök sín í þessum efnum; salan hafi í sjálfu sér verið í samræmi við stefnu bankans um að selja eignir sem hann hefur fengið í fangið, en sú aðferð að koma hluta bréfanna til valinna viðskiptavina skömmu fyrir útboð hafi verið misráðin. Verklagi við söluferli eigna verði breytt í kjölfarið.
Höskuldur fer yfir feril þessa máls í samtali sínu við Pál Magnússon í kvöld, en ræðir þess utan um álit sitt á samfélagsbönkum og í hverra höndum viðskiptabankar á Íslandi séu best komnir.
Þjóðbraut er á dagskrá Hringbrautar klukkan 21:00 í kvöld.