Svarar enn ekki spurningum

Illugi Gunnarsson, þingmaður og menntamálaráðherra, fékk þriggja milljóna króna lán frá orkufyrirtækinu Orku Energy árið 2011 eða 2012. Þetta herma heimildir Stundarinnar en ekki hefur áður verið greint frá upphæð lánsins.

Fram kemur í frétt Stundarinnar að fjölmiðilinn hafi í fimm mánuði linnulaust en án árangurs reynt að ná tali af Illuga Gunnarssyni. Fleiri fjölmiðlar hafa reynt hið sama að fá svör frá ráðherranum en án árangurs. Í fyrirsögn á visis.is í sumar sagði: „Illugi svarar ekki fjölmiðlum en minnir á mikilvægi þeirra“.

Stundin segir að ástæða þess að svör Illuga við spurningunum um tengsl hans við Orku Energy séu mikilvæg þar sem Illugi hafi fundað með forsvarsmönnum fyrirtækisins, meðal annars stjórnarformanninum Hauki Harðarsyni, og kínverskum samstarfsaðila þess, ríkisrekna orkufyrirtækinu Sinopec. Fulltrúar frá Orku Energy hafi verið hluti af viðskiptasendinefnd Illuga þegar hann heimsótti Kína í mars. „Í ljósi þess að Illugi starfaði hjá fyrirtækinu og fékk frá því lán upp á þrjár milljónir, auk þess sem stjórnarformaðurinn Haukur keypti af honum íbúðina hans í Reykjavík eftir að hann lenti í fjárhagsskröggum árið 2013, þarf Illugi að svara frekari spurningum um tengsl sín við fyrirtækið,“ segir í frétt Stundarinnar.

Fram kemur einnig að Illugi  hafi sagt að hann greiði 230 þúsund krónur í leigu fyrir íbúðina til Hauks en hafi ekki sýnt fram á þetta með því að framvísa leigusamningi eða kvittunum þrátt fyrir að hafa verið beðinn um sönnun fyrir orðum sínum.