Svanhildur sagði í samtali við fréttastofu að hún vonaðist til að af fundinum gæti orðið um miðja næstu viku. Hún segir mikilvægt að setjast niður og ræða launamál starfsfólksins heildstætt. Langflestir þjónustufulltrúar Hörpu, yfir 20 manns, sögðu upp fyrr í vikunni vegna óánægju með að þeir skyldu hafa verið lækkaðir í launum. Uppsagnirnar taka gildi um næstu mánaðamót, en uppsagnarfrestur er þrír mánuðir. Svanhildur segir að vinnustaðasálfræðingar frá Lífi og sál verði kallaðir til á næstunni til að ræða við starfsfólk, ef það kýs svo.
Þjónustufulltrúarnir sem sögðu upp störfum í tónlistarhúsinu Hörpu í Reykjavík fyrr í vikunni hafa ekki fengið nein viðbrögð, hvorki frá forstjóra né stjórn hússins, að sögn Guðrúnar Jónu H. Hilmarsdóttir, sem er í uppsagnarhópnum. Af 27 þjónustufulltrúum sögðu 23 eða 24 upp. Guðrún Jóna segir að flestir ætli sér að vinna uppsagnarfrestinn. Hún segir að það sé fyrst og fremst gert af virðingu við gesti og viðskiptavini hússins. Guðrún segir að hún og félagar hennar séu mjög þakklát fyrir þann stuðning sem stéttarfélag þeirra, VR, hefur sýnt þeim.
Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR segist fagna því að Svanhildur Konráðsdóttir óski eftir fundi með félaginu. Hann segist ætla að ræða við þjónustufulltrúana á mánudag og í framhaldi af honum þá við forstjóra Hörpu, segir í frétt RÚV.