Svanhildur Konráðsdóttir, forstjóri Hörpu, óskaði í gær eftir því að laun hennar verði lækkuð afturvirkt frá 1. janúar síðastliðnum og að þau verði til samræmis við úrskurð Kjararáðs í fyrra 2017. Hún greinir frá þessu á Facebook-síðu sinni og Rúv sagði frá.
Stjórn Hörpu sendi í dag frá sér yfirlýsingu vegna fjöldauppsagna þjónustufulltrúa í húsinu sem sættu sig ekki við að vera lækkaðir í launum á sama tíma og forstjórinn fengi ríflega launahækkun. Í yfirlýsingunni var ýjað að því að laun æðstu stjórnenda hússins verði lækkuð.
Þjónustufulltrúarnir áttu í gærkvöld fund með Svanhildi og fjármálastjóra hússins. Eftir það sögðu þeir upp. Svanhildur skrifar í færslunni nú síðdegis á Facebook „Friður um Hörpu er ofar öllu,“.