Svanhildur Konráðsdóttir forstjóri Hörpu ætlar ekki að tjá sig um uppsagnir 20 þjónustufulltrúa í gærkvöld fyrr en hún er búin að ræða við stjórnarformann Hörpu og aðra starfsmenn fyrir hádegi.
Í yfirlýsingu þjónustufulltrúarnir segjast þeir óánægðir með að hafa verið lækkaðir í launum um áramótin þar sem þeir hafi þegar verið launalægstu starfsmenn Hörpu. Á fundi með Svanhildi og öðrum stjórnendum hafi þeir upplifað vanþekkingu þeirra á starfi sínu. Ekki er vitað hvort þjónustufulltrúarnir geta hætt strax eða hvort einhverjir þeirra séu með uppsagnarfrest. Tónlistarhúsið Harpa er í eigu ríkisins og Reykjavíkurborgar.