Svanhildur árney er látin

Svanhildur Árney Ásgeirsdóttir fæddist á Bræðraborgarstíg í Reykjavík 24. nóvember 1937. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð 27. maí 2019. Svanhildur var frumkvöðull og heiðruð af Landspítalanum fyrir störf sín þar. Greint er frá andláti Svanhildar í Morgunblaðinu í dag.

\"\"Svanhildur bjó fyrstu árin sín í Reykjavík en fluttist ung til Akureyrar og sleit þar barnsskónum. Með fyrri manni sínum, Sveinbirni, fluttist hún síðar til Reykjavíkur og bjuggu þau þar með sín þrjú börn. Eftir skilnað fluttist hún, ásamt börnum sínum, að Brú í Hrútafirði þar sem hún hóf störf sem talsíma- og matráðskona. Þar kynnist hún seinni manni sínum, Regin, en þar starfaði hann sem símvirki. Þau giftust og eignuðust tvo syni og fluttust þau síðan á höfuðborgarsvæðið og bjuggu þar lengst af í Kópavogi.

Svanhildur fór ung í Húsmæðraskólann á Laugalandi og starfaði síðar sem húsmóðir eftir það þar til hún hóf störf í fiskverkun í Ísbirninum í Reykjavík. Að því loknu hóf hún störf á Landspítalanum á skiptiborðinu við símsvörun.

Var hún síðar með þeim fyrstu er störfuðu á tölvudeild Landspítalans. Seinna stofnaði hún innan Landspítalans nýsigagnadeildina Tölvuverið, gegndi þar starfi forstöðumanns til fjölda ára og var síðar heiðruð fyrir störf sín þar á Landspítalanum.