Svandís stjórnar árásum á framsókn!

Vigdís Hauksdóttir, formaður fjárlaganefndar og einn aðsópsmesti þingmaður þjóðarinnar hafnar því algjörlega að Framsóknarflokkurinn vilji einangra Íslendinga frá umheiminum og segir flokkinn þvert á móti vera líberal.

Þetta kemur fram í fjörlegu viðtali við þingkonuna í Fréttablaðinu í dag þar sem hún lætur vaða á súðum og fer mikinn í palladómum um mann og annan. Spurð að því hvort enginn rasismi fyrirfinnist í Framsókn svarar hún því til að svo sé að sjálfsögðu ekki: \"Þetta er opinn, lýðræðislegur flokkur sem berst fyrir mannréttindum,\" en þó nefnir Vigdís það á öðrum stað í viðtalinu að hún vilji stíga varlega til jarðar í málefnum flóttamanna: \"Þetta eru andstæðingar okkar sem eru að reyna að gera okkur tortryggileg í þessum málaflokki.\"

Og hún segir vegið að flokknum og flokksmönnum úr öllum áttum: \"Framsóknarflokkurinn var orðinn óþægilega stór núna eftir síðustu kosningar fyrir ákveðna andstæðinga okkar. Þá er öllum brögðum beitt,\" segir Vigdís í viðtalinu og segir vopnunum einkum beint að forsætisráðherra: \"Ég get alveg sagt ykkur það að þessar grímulausu árásir þingmanna stjórnarandstöðunnar á forsætisráðherra í þinginu, mér blöskrar það alveg,\" segir hún og segir augljóst hver standi fyrir þessu aðkasti og stjórni árásunum, það sé Svandís Svavarsdóttir en hún sé \"mjög aggreessív í þessa veru, svo fylgja hinir á eftir.\"

Sigmundur Davíð standi þetta þó allt af sér, segir Vigdís og svo sé eins um flokkinn hennar sem fari mildum höndum um þjóð sína og geeri henni gott eitt til.

Í vitðtalinu fer hún líka yfir ríkisfjármálin, segir aðhald áfram nauðsynlegt og vill alls ekki fleiri ríkisstofnanir; fremur þurfi að sameina þær en stofna til nýrra eins og ráðherrar Sjálfstæðisflokksins hafi verið að gera þvert á slagorð sín að undanförnu, en Vigdís hefur meðal annars gagnrýnt mjög nýja stofnun á sviði ferðamála sem hún fær ekki séð hvað eigi að gera.