Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra, segir afnám svæðaskiptinga í strandveiðum fullreynt og markmið breytinga laganna árið 2019 hafi verið að koma í veg fyrir að sjómenn þyrftu að keppast um að fá sem stærsta hlutdeild innan hvers svæðis áður en að veiðar væru stöðvaðar.
Þetta kemur fram í aðsendri grein Svandísar sem birtist í Morgunblaðinu í morgun en hún hyggst leggja til frumvarp um svæðaskiptingu á nýjan leik í haust.
„Nú er kappið á landsvísu og því misheppnaðist breytingin. Það þýðir það að þau svæði þar sem fiskgengd er síðsumars ná ekki að veiða fiskinn á kjörtíma, þ.e.a.s. þegar fiskurinn er stærstur og verðmætastur,“ segir Svandís jafnframt í grein sinni og bætir við að hún telji fyrirkomulagið nú fullreynt.
„Í þau fjögur sumur sem þetta fyrirkomulag hefur verið viðhaft þá hefur þurft að stöðva veiðarnar áður en að tímabilið klárast í tvö skipti og nú að öllum líkindum gerist það í þriðja skipti og enn fyrr en áður.“
Svandís segist hafa talað við fjölda strandveiðisjómanna sem hafi gagnrýnt þetta fyrirkomulag og sagt það ósanngjarnt. Sumir þeirra hafi bent á hættuna í upphafi.
„Þá hefur einnig verið bent á að ef þessu verður muni bátar halda áfram að færast frá þeim svæðum sem koma illa út úr þessu fyrirkomulagi yfir á það svæði þar sem fiskgengd er með þeim hætti að hagkvæmt er að stunda þær frá upphafi tímabils. Þannig sé fyrirkomulagið farið að vinna gegn þeim byggðum sem hún átti að treysta,“ segir Svandís og bætir við að hún hyggist leggja fram frumvarp í haust sem taki upp svæðaskiptinguna á nýjan leik.
Svandís hyggst einnig ráðstafa því sem fékkst af skiptimörkuðum fyrir makríl til strandveiða, sem muni lengja þann tíma sem veiðar geta staðið. Ásamt því að auðvelda að halda til annarra veiða eftir að strandveiðipotturinn er tómur.