Svanborg Sigmarsdóttir stjórnmálafræðingur er nú starfsmaður Viðreisnar og um leið verkefnisstjóri sveitarstjórnarmála. Svanborg hefur starfað sem upplýsingafulltrúi hjá Ríkisendurskoðun og þá var hún áður blaðamaður á Fréttablaðinu. Hún segir:
„Hugsjónir Viðreisnar um frjálslyndi, frelsi, jafnréttismál, umhverfismál og alþjóðasamvinnu ríma vel við mína sannfæringu um gott og réttlátt samfélag. Því hlakka ég mjög til að taka þátt í starfi Viðreisnar.“