Svala vill verða ólétt: „Það væri svona besta gjöf allra tíma“

Söngkonan Svala Björgvinsdóttir segir að fullkomnasta jólagjöfin í heiminum væri að verða ólétt.

Svala var gestur í aðventuþætti Völu Eiríksdóttur á LéttBylgjunni í gær. Ræddi hún þar um jólin en Svala hefur sungið tvö vinsæl jólalög sem spiluð eru grimmt í aðdraganda hverra jóla.

Hún sagði að árið sem væri að líða væri besta ár sitt hingað til þar sem hún hefði fundið ástina.

Þá var hún spurð hvað hana langaði í jólagjöf:

„Fullkomnasta jólagjöfin væri, ég skal bara segja það, og það er gjöf sem ég hef þráð allt mitt líf og það er að vera með lítið líf í maganum. Að verða ólétt væri besta gjöf í öllum heiminum,“ sagði hún.

„Það er ekki einu sinni jólagjöf heldur gjöf sem ég hef þráð allt mitt líf. Það væri svona besta gjöf allra tíma.“

Hér má hlusta á þáttinn í heild sinni.