Svakalegur árekstur á myndbandi

Hringbraut birti á dögunum ljósmynd af vopnuðum lögreglumanni á slysstað í Ljósavatnsskarði. Þar varð harður árekstur 24. nóvember síðastliðinn eins og Hringbraut hefur sagt frá sem komst ekki síst í fréttir vegna lögreglumannsins sem var vopnaður skammbyssu eftir æfingu.

Slysið fer að verða eitt fréttnæmasta slys ársinshér á landi því nú hefur ferðamaður, farþegi í öðrum bílnum, birt myndband af árekstrinum en tilviljun réð að hann var með kveikt á upptöku þegar slysið varð. Staðhæft er að læknar hermi að hrein gæfa hafi orðið til þess að enginn lést í slysinu.

Lesendur geta séð myndbandið af árekstrinum hér en varað skal við því fyrirfram því myndirnar eru sláandi.

Enginn er í lífshættu eftir slysið. „Takk fyrir ástina og stuðninginn hvaðanæva úr heiminum,“ skrifar annar farþeginn við myndbandið sem birt var á YouTube en DV birti að því er Hringbraut kemst næst fyrst myndbandið hér á landi.