Guðný Hansdóttir, Svafa Grönfeldt og Þórunn Reynisdóttir bjóða sig fram í stjórn Icelandair Group á aðalfundi flugfélagsins sem fer fram næsta föstudag, 8. mars. Sjö manns, þar af fjórir núverandi stjórnarmenn, munu berjast um fimm stjórnarsæti.
Fram kemur í tilkynningu sem Icelandair Group sendi Kauphöllinni síðdegis í dag að sjö framboð hafi borist vegna stjórnarkjörsins. Fjórir núverandi stjórnarmanna, Guðmundur Hafsteinsson, Heiðrún Jónsdóttir, Ómar Benediktsson og Úlfar Steindórsson stjórnarformaður, gefa kost á sér til endurkjörs en Ásthildur Margrét Otharsdóttir hyggst hætta í stjórninni.
Til viðbótar hafa þær Guðný Hansdóttir, fyrrverandi framkvæmdastjóri mannauðssviðs Inness, Svafa Grönfeldt, sem starfar við nýsköpunarsetur MIT-háskólans í Boston en var áður framkvæmdastjóri hjá Alvogen, og Þórunn Reynisdóttir, forstjóri Ferðaskrifstofu Íslands, boðið sig fram í stjórn Icelandair Group.
Nánar á
https://www.frettabladid.is/markadurinn/svafa-groenfeldt-bur-sig-fram-i-stjorn-icelandair