Svaf varla vegna rottugangs

Sæmi rokk er gestur Sigmundar Ernis í viðtalsþættinum Mannamál í kvöld og lýsir þar af einlægni uppvaxtarárunum í Höfðaborginni þar sem vistarverurnar voru svo fátæklegar og hrörlegar að hann og tvíburabróðir hans, Magnús, gátu aldrei haldið þar afmæli sín sakir þrengsla.

Það er athyglisvert að fylgjast með þessum dáða dansara rifja upp æskuárin við þessar erfiðu aðstæður þar sem ýmist heyrðist svo mikið í rottunum undir húsinu eða í ástarleikjum nágrannanna í kring að stundum var erfitt fyrir litla stráka að sofna. Íbúð fjölskyldunnar var undir 30 fermetrum og þótti þó stór miðað hinar 25 fermetra kitrurnar í Höfðaborginni.

Hann segir frá ástæðu nafngiftarinnar, en hann innleiddi rokkdansinn á Íslandi og þótti dansa þá með slíkum tilþrifum að áhorfendur trúðu vart eigin augum. Svo fór hann að byggja, vildi helst vera kominn inn í eigin íbúð fyrir tvítugt, eftir uppvöxtinn í köldum húsum Höfðaborgar, en hann lærði húsasmíði áður en hann gerðist lögga í hruninu 1968 og 1969 þegar fjölmargir jafnaldrar hans flúðu land í kjölfar síldarhrunsins.

Hann þótti vera milt yfirvald í lögreglubúningnum og segir sögur af því í þættinum þegar honum eldri menn grétu í fangi hans þegar hann gaf þeim föðurlega áminningu fremur en að sekta þá og refsa fyrir einhverjar yfirsjónir í daglegu amstri.

Og loks í lokin kemur sagan af því af hverju skáksnillingurinn Bobby Fischer valdi hann sem lífvörð sinn örlagaárið 1972.

Mannamál byrjar klukkan 20:30 í kvöld.