Vel á fjórða hundrað ungir sjálfstæðismenn hvaðanæva af landinu eru skráðir til landsfundar Sjálfstæðisflokksins sem hefst á morgun, föstudag, í Laugardalshöll. Er þetta ein mesta þátttaka ungs fólks á landsfundi í sögu Sjálfstæðisflokksins, að því er fullyrt er í tilkynningu SUSara.
Þar kemur fram að stjórn SUS hafi síðastliðna daga, í samstarfi við félagsmenn, unnið tæplega hundrað tillögur að stefnumálum sem ungir sjálfstæðismenn leggi fram á fundinum. Tillögurnar snúi að öllum málefnasviðum og er þeim ætlað að skerpa á stefnu flokksins er varði frelsi til athafna og orða, með áherslu á ungt fólk.
Þá er einnig sögulegt, segir í tilkynningunni, að tveir ungir sjálfstæðismenn séu í framboði til forystu flokksins. Annars vegar Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, sem býður sig fram til varaformanns, og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, sem býður sig fram til ritara að öðru sinni. Ennfremur séu tæplega 60 framboð ungra sjálfstæðismanna í málefnanefndir flokksins sem fari fyrir tilteknum málaflokkum Sjálfstæðisflokksins á milli landsfunda.
Á landsfundi flokksins árið 2015 náðu ungir sjálfstæðismenn í gegn 89 prósent allra tillagna sinna í málefnanefndum landsfundarins en þær voru þá einnig hátt í hundrað, segir að lokum í tilskrifi ungliðanna.