Surprise! trump ætlar aftur fram

Donald Trump hefur ákveðið að sækjast eftir endurkjöri í forsetakosningunum 2020. Þetta var tilkynnt formlega í dag og jafnframt að Brad Pascale sem fór fyrir netmiðlaátaki framboðsins í kosningunum 2016 yrði kosningastjóri. 

Það var vefmiðillinn Drudge Report, sem hefur verið mjög hliðhollur forsetanum, sem birti fyrstu frétt um málið og þar kom fram sitjandi forseti hefði aldrei fyrr tilkynnt jafn snemma um ákvörðun sína um að sækjast eftir endurkjöri, eða 980 dögum fyrir næstu forsetakosningar í nóvember 2020.