Súrheysturn breytt í heilsuhótel

Gamall súrheysturn hefur fengið nýtt hlutverk í Skeiða og Gnúpverjahreppi því honum hefur verið breytt í heilsuhótel með fjórum herbergjum.

Frétt um þetta skrifar Magnús Hlynur Hreiðarsson fréttamaður á Suðurlandi á vísi.is. Súrheysturninn er frá 1957 og við bæinn Klett. Ásgeir Eiríksson húsasmíðameistari er maðurinn á bak við breytingarnar á turninum og segir í samtali við Magnús Hlyn:

 „Ég ætlaði ekkert að gera þetta, ég ætlaði að fara að búa til jógastöð en arkitektinn vildi endilega byggja turn. Það endaði með því að hann hafði svo flottar hugmyndir að ég réðst í turnbyggingu, jógastöðin bíður“, segir Ásgeir. Mbl.is segir frá því að Ásgeir hyggist starfrækja í turninum miðstöð í kínverskum lækningum. 

Fréttin og myndskeið með henni er hér.