Önnur þáttaröð af Súrefni hefur göngu sína á Hringbraut í kvöld. Um er að ræða tólf þátta seríu um umhverfismál í umsjón Lindu Blöndal.
Linda mun fjalla vikulega um eitt mikilvægasta málefni líðandi stundar. Hún ræðir við fólk sem finnur góðar lausnir í umhverfismálum en einnig við sérfræðinga, vísindamenn og stjórnmálamenn. Ólík fyrirtæki og sveitarfélög sem eru að vinna að umhverfisvernd eru heimsótt og þar kynnumst við því hvaða lausnir eru notaðar í þágu umhverfisins.
Í fyrsta þættinum heyrum við af 30 ára sögu Endurvinnslunnar - förum í Knarrarvoginn en hittum líka stjórnendur Facebook síðunnar „Áhugahópur um endurvinnslu og endurnýtingu“ og setjumst niður í Góða hirðinum með þeim þremur sem stjórna síðunni, en meðlimir eru nærri 10 þúsund í dag.
Súrefni – á dagskrá alla miðvikudaga klukkan 20:00.