Sunnudagsþátturinn við það að hefjast

Sjónvarpsstöðin Hringbraut hefur forystu í samfélagsumræðu. Alla daga eru málin rædd á Hringbraut. Nú klukkan tíu hefst sunnudagsþátturinn.

Þar verða gestir Valgerður Bjarnadóttir, Vilhjálmur Bjarnason, Kristinn Sigmundsson og Jón Bjarnason.

Valgerður og Vilhjálmur ræða stjórnmálin, enda bæði á leið í kosningabaráttu. Ljóst er að það verður tekist á í kosningunum enda er staða stjórnmálaflokkanna mjög sérstök um þessar mundir.

Kristinn Sigmundsson söngvari er meðvitaður um samfélagið og tekur virkan þátt í umræðunni.

Jón Bjarnason fyrrverandi ráðherra er höfundur strandveiðakerfisins. Og er stoltur af. Það og fleira verður rætt í þættinum.

Sigurjón M. Egilsson, ásamt Lindu Blöndal, sér um þáttinn sem er á dagskrá útvarps og sjónvarps Hringbrautar núna klukkan tíu.

Útvarp Hringbrautar er á tíðninni fm 89,1.