Fleiri fái sneið af flugkökunni

Nokkrir þingmenn minnihlutans á Alþingi hafa lagt fram tillögu til þingsályktunar  um millilandaflug um Akureyrar- og Egilsstaðaflugvelli. Flutningsmenn eru Kristján L. Möller, Össur Skarphéðinsson, Árni Páll Árnason, Steingrímur J. Sigfússon, Brynhildur Pétursdóttir, Helgi Hrafn Gunnarsson, Katrín Júlíusdóttir og Valgerður Bjarnadóttir.

„Alþingi ályktar að fela innanríkisráðherra og iðnaðar- og við­skipta­ráðherra að leggja fyrir Alþingi áætlun um aðgerðir sem ráðast þarf í til að reglubundið millilandaflug geti hafist um Akureyrarflugvöll og Egilsstaðaflugvöll. Áætlunin verði lögð fyrir Alþingi eigi síðar en 31. janúar 2016,“ segir í ályktuninni.

 Í greinargerð segir að  beint millilandaflug til Akureyrar og Egilsstaða mundi  gjörbreyta möguleikum ferðaþjónustu á Norður- og Austurlandi til að fá til sín aukinn hluta ferðamanna sem koma til landsins. Beint millilandaflug myndi dreifa ferðamönnum betur um landið, minnka álag á þekkta ferðamannastaði suð­vestanlands og koma í veg fyrir ofsetningu þeirra. Beint millilandaflug til Akureyrar og Egilsstaða myndi fjölga ferðamönnum sem koma til landsins, lengja ferðamannatímann á Norður- og Austurlandi, bæta til muna nýtingu fjárfestinga í ferðaþjónustu norðan- og austanlands og opna nýjar leiðir í millilandaflugi fyrir íbúa svæðisins og þróunarmöguleika atvinnulífs á Norður- og Austurlandi. 

Í skýrslu Ferðamálastofu frá apríl 2015 kemur fram að fjöldi erlendra ferðamanna hefur meira en þrefaldast frá árinu 2000. Árleg aukning hefur verið að jafnaði 9,3% milli ára. Árið 2014 komu um 997 þúsund ferðamenn til landsins. Í skýrslunni kemur fram að samkvæmt talningu komu um 969 þúsund ferðamenn með flugi um Keflavíkurflugvöll eða 97,2% af heildarfjölda ferðamanna. Til samanburðar er áætlað út frá sölu- og farþegatölum að um 18 þúsund manns hafi komið með Norrænu um Seyðisfjörð eða um 1,8% af heildinni og um 10 þúsund með flugi um Reykjavíkur- eða Akureyrarflugvöll eða um 1% af heildinni. „Í ljósi þessa er vert að líta til þess að gagnaöflun á sviði ferðamála virðist sýna að staðsetning flugvallar skiptir miklu máli um ferðamynstur fólks,“ segir í greinargerð með ályktuninni.

Millilandaflug um Akureyrarflugvöll hefur ekki náð að festa sig í sessi á undanförnum árum og áratugum. Skýringar eru margar en þær helstar nefndar að fjármagn, jafnt opinbert sem frá einkaaðilum, hefur tilfinnanlega skort til markaðssetningar á flugvellinum á erlendri grundu.