Sunna er lömuð fyrir lífstíð

Þetta er var­an­leg­ur skaði sem þýðir að hún er lömuð fyr­ir lífstíð,“ seg­ir Páll Kristjáns­son, lögmaður Sunnu El­viru Þor­kels­dótt­ur í Morgunblaðinu í dag.

Þar segir að hún hafi und­an­farna viku verið í end­ur­hæf­ingu á bæklun­ar­spít­ala í útjaðri Sevilla. Þar hafi hún fengið tals­vert betri umönn­un en hún hafði áður fengið á há­skóla­sjúkra­húsi í Malaga þar sem hún lá fyrstu vik­urn­ar eft­ir slysið.

Spurður í Morg­un­blaðinu í dag­ hvort nýrra frétta sé að vænta af máli Sunnu seg­ist Páll ekki vita til þess.