Sundlaugarnar bestar

Af 1,8 millj­óna ferða­manna sem heim­sóttu Ísland í fyrra gistu níu af hverjum tíu í Reykja­vík. Og níu af hverjum tíu sum­ar­gestum borgarinnar sögðu upp­lifun sína af borg­inni frá­bæra eða góða, segir á vefnum gestur.is. Vel yfir 90 prósent sumar eða vetrargesta kváð­ust munu mæla með borg­inni við aðra. Ánægjan var mest með sund­laug­arn­ar. Af sjö stöðum sem spurt var hvort fólk hefði skoðað fóru flestir um hafn­ar­svæðið á Granda, eða 73 pró­sent. 70 pró­sent gengu um Lauga­veg­inn, 67 pró­sent fóru að Hall­gríms­kirkju og rúmlega helmingur heim­sótti Hörpu.