Sumir hætta við - aðrir espast af órg

Að minnsta kosti einn boðaður forsetaframbjóðandi er hættur við framboð vegna ákvörðunar Ólafs Ragnars að bjóða sig fram í 6. skipti til forseta þrátt fyrir fyrri yfirlýsingar um hið gagnstæða.

Guðmundur Franklín er hættur við framboð og segist styðja Ólaf.

Fyrr í dag birti Hringbraut frétt þar sem haft er eftir Guðna Th. í grein sem hann skrifaði að sitjandi forseti sigri alltaf sem verður að teljast innlegg í að Guðni hætti við að bjóða sig fram.

Þó eru til þeir frambjóðendur sem segja að ákvörðun Ólafs skerpi baráttuna og hvetji þá áfram. Þeirra á meðal er Andri Snær Magnason. Í viðtali við mbl.is segir hann að ákvörðun Ólafs breyti engu.

„Þetta ger­ir valið um kyn­slóðaskipt­in áhuga­verðari og skýr­ari og umboðið skýr­ara líka. Þannig að ég held að þetta sé já­kvætt og þegar ég bauð mig fram bjóst ég við allskon­ar óvænt­um uppá­kom­um. Ég held að eng­inn geti skipu­lagt næstu tvo mánuði út frá einni breytu til eða frá,“ seg­ir Andri Snær í samtali við mbl.is