Ferðaþjónustan um norðaustan- og austanvert landið er í uppnámi vegna þráláts kuldakasts sem hefur einkennt þetta landsvæði það sem af er sumri og ganga sumir svo langt að segja Að sumarið sé ónýtt fyrir þeim.
Staðan er þannig á tjaldstæðunum á Egilsstöðum og í Atlavík, sem vanalega eru einhverjir vinsælastu áfangastaður Íslendinga á sumrin, að þar sér varla í tjöld og hvað þá ferðamenn. Aðsóknin er vel innan við tíundi hluti þess sem menn eiga að venjast á svæðinu.
Fyrir bragðið er tekjumissirinn mikill fyrir ferðaþjónustuaðila í fjórðungnum sem reiða sig öðru fremur á þessa háönn ferðatímabilsins.
Útlit er fyrir að veðrið haldist með sama hætti næstu daga, um sex stiga hiti verði á áðurnefndu svæði en hlýjast hins vegar sem fyrr um vestan- og suðvestanvert landið, en þar má búast við allt að sextán stiga hita næstu daga og sólríku veðri.
Kuldakastið eystra hefur meðal annars haft það í för með sér að ýmsar ferðaleiðir upp til óbyggða hafa enn ekki verið opnaðar, sem er mörgum vikum á eftir áætlun, en mikil snjóalög halda þeim lokuðum um sinn, svo og snjókoma um hásumar.