Sumarið syðra fær 31 af 48 mögulegum

Sá dáði veðurfræðingur þjóðarinnar, Trausti Jónsson hefur gefið sumrinu 2015 einkunn sína, svo sem hann hefur gert um langt árabil - og fær sumarið syðra prýðiseinkunn, en algera falleinkunn nyrðra.

Trausti hefur þann fyrirvara á þessum orðum sínum að um leik sé að ræða fremur en vísindin ein: \"Leggja verður áherslu á að hér er um leik að ræða en ekki endanlegan dóm, enda smekkur misjafn,\" eins og Trausti orðar það sjálfur.

Hugum fyrst að forsendum; hæst er gefið 48 en lægst núll í kerfi Trausta. Og hann skrifar: \"Sumarið 2009 fær hæstu einkunnina, 41, en sumrin 1928 og 1931 fylgja fast á eftir. Öll sumur áranna 2007 til 2012 eru með meira en 35 í einkunn. Þetta tímabil er einstakt. Sumarið 1983 er á botninum. Mikil umskipti urðu 2013. Þá kom hraklegasta sumar í Reykjavík í nærri 20 ár. Sumarið í fyrra þótti einnig fá heldur laka einkunn - þó náði hún meðallagi áranna 1961 til 1990.\" 

Ogþá kemur dómurinn yfir sumrinu sem er að kveðja: \"...sumarið í sumar er með 31 í einkunn - hefði talist með bestu sumrum á kalda skeiðinu 1965 til 1995 - og í góðum hóp á hlýskeiði fyrr á öldinni - en jafnast ekki á við öndvegissumrin 2007 til 2012,\" skrifar Trausti og skimar svo yfir landið sitt: \"Á Akureyri er sumarið í sumar neðarlega á lista. Virðist fá lægstu einkunn allra sumra frá 1993 að telja.\"

Og þannig fór um sumarið a tarna, hvort sem okkur líkar betur eða verr.