Veturinn er nokkuð tvístígandi þessa dagana þegar hann heldur innreið sína yfir landið, en búast má við dágóðum sumarhita víða á landinu í dag eftir skammvinnt kuldakast í blábyrjun vetrar.
Búast má við allt að 14 stiga hita um vestan- og sunnanvert landið í dag og litlu minni sumarhita á morgun, en heldur kólnar svo um helgina, þó ekki meira en svo að enn má búast við 6 til 8 stiga hita á landinu.
Annars er það helst að frétta af veðrinu að spáð er mjög snörpum vindhviðum undir Eyjafjöllum og í Öræfum í dag. Þeim ósköpum fylgir mikil rigning um suðaustanvert landið.