Sumarið er ekkert endilega á því að yfirgefa Íslendinga þótt komið sé fram í seinnihluta október, en suðlægar áttir á næstu dögum færa yfir landið hlýindi, einkum um norðaustan- og austanvert landið þar sem búast má við 15 stiga hita um helgina.
Þetta er auðvitað veruleg veðrabót eftir harla kuldalegt sumarið á þessum slóðum þangað sem einungis tíundi hluti íslenskra ferðamanna skilaði sér miðað við venjulegt árferði með tilheyrandi búsifjum fyrir ferðaþjónustuaðila.
Það verður hvasst um norðvestanvert landið í dag, líklega stormur á Ströndum og inn af Húnaflóa, en súld annars um vestanvert landið og á að giska 7 gráður, en sem fyrr segir mun hlýrra fyrir austan Tröllaskagann og niður eftir Austfjörðum.
Svona helst veðrið fram á sunnudag þegar aftur fer að kólna og má þá vart búast við meiri hita en 2 til 6 stigum, víða skúrum og slydduéljum og þurru og björtu veðri fyrir norðaustan.