Síðdegis í gær kom upp eldur í sumarbústað á Barðaströnd á Vestfjörðum. Illu heilli tókst ekki að ráða niðurlögum eldsins fyrr en það var um seinan og brann bústaðurinn til grunna. Allt tiltækt slökkvilið tók þátt í slökkvistarfinu, alls átján manns, auk lögreglu og sjúkraliðs.
Frá þessu er greint í Morgunblaðinu í dag. Þar segir að bústaðurinn, sem er rétt innan við Kleifaheiði í Holtsdal, hafi verið mannlaus þegar eldurinn kom upp.
Mikill gróður er allt í kringum bústaðinn en sem betur fer hafði rignt í gær og því urðu ekki miklar gróðurskemmdir á svæðinu.
Slökkviliðmenn frá Patreksfirði, Tálknafirði og Bíldudal tóku þátt í slökkvistarfinu. Að sögn Davíðs Rúnars Gunnarssonar slökkviliðsstjóra var bústaðurinn mikið brunninn þegar slökkviliðið kom á vettvang á sjöunda tímanum í gær og því ljóst að hann er ónýtur.