Gleðilegt sumar, kæru landsmenn!
Þennan morgun er hiti víðast frá frostmarki að þremur stigum á helstu þéttbýlisstöðum landsins. Á Norðurlandi fraus saman sem talið er vísa til þess að sumarið verði gott samkvæmt þjóðtrú.
Ný árstíð heilsar með vætu víðast eða éljum. Í dag verður suðvestan 8-13 m/s um landið norðvestanvert, skúrir eða él og hiti 1 til 6 stig. Þurrt framan af degi suðvestanlands, en suðvestan 3-8 þar síðdegis og smáskúrir með hita 3 til 7 stig. Vestan gola eða kaldi á austurhelmingi landsins, yfirleitt þurrt og hiti að 10 stigum.
Norðvestan 3-8 m/s á morgun. Stöku skúrir eða él norðantil, annars bjart með köflum. Hiti frá frostmarki í innsveitum norðaustanlands, upp í 10 stig á Suðausturlandi.