Sultarólin hert

Bandaríkin áforma að skera umtalsvert niður bandarísk framlög til Sþ. Sþ. eru alþjóðasamtök sem voru stofnuð árið 1945. Ísland gekk í samtökin með hálfum hug árið 1946. Var mikið deilt á Alþingi um þessa ákvörðun enda eru Sþ. í grunninn hernaðarbandalag.

Nú verða Sþ. af einum 285 milljónum bandaríkjadala ef boðuðum áformum Bandaríkjanna verður fylgt eftir en sem stendur greiða Bandaríkin um 22% af öllum framlögum til Sþ. og stofnana þeirra. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem karpað er um framlög Bandaríkjanna til Sþ. og um árabil drógu þau að inna af hendi greiðslur til Sþ.

[email protected]