Súldin tekur við af éljaganginum

Éljagangur síðustu daga er búinn í bili og við tekur heldur hlýrri suðlæg átt með rigningu eða súld, að því er fram kemur í veðurpistli veðurfræðings á vakt. Úrkomulítið verður þó norðaustantil. Hiti verður allt að tíu stigum austanlands en heldur svalara annars staðar.

 

Samkvæmt veðurspá Veðurstofunnar verður sunnan- og suðaustanátt, fimm til þrettán sekúndu, með morgninum og víða rigning eða súld, einkum síðdegis. Hiti verður á bilinu þrjú til tíu stig og hlýjast austanlands, sem fyrr segir. 

Á morgun verður austlæg átt, þrír til tíu metrar á sekúndu, og víða væta en lengst af þurrt fyrir norðan. Það bætir í vind á Vestfjörðum annað kvöld. Austast á landinu kólnar heldur en annars staðar hlýnar.

Veðurfræðingur á vakt segir að það stefni í sæmilegasta veður á morgun, frekar austlæga átt og áfram nokkra vætu, einkum sunnan- og austantil. Úrkomulítið veður verður fyrir norðan þar til annað kvöld. Samkvæmt veðurpistli býður komandi vinnuvika upp á nokkrar lægðir með vætu í flestum landshlutum og austlægri eða breytilegri vindátt. Stíf og svöl norðaustanátt gæti náð inn á Vestfirði um miðja viku og haft þar áhrif fram að helgi.