Margs konar heimildar- og útilífsþættir hafa auðgað dagskrá Hringbrautar um hátíðarnar og annar dagur nýs árs er þar engin undantekning, en í kvöld er á dagskrá stöðvarinnar rómuð kvikmynd Péturs Steingrímssonar um suðurfirði Vestfjarða.
Óhætt er að segja að þetta landssvæði sem teygir sig allt að vestasta skika Íslands - og raunar Evrópu allrar - sé einstakt í náttúrufari og dýralífi, en óvíða í álfunni er að finna jafn tilkomumikið fuglalíf og í þverhnýpi Látrabjargs sem er eitt helsta einkennistákn svæðisins. Og það er fjölbreytt að landslagi eins og vel kemur fram í ferðalífsþætti Péturs í kvöld, enda skiptast þar á gulir sandar, syngjandi fossar og ydduð fjöll, svo djúpt skorin dulmögnuðum dölum að aðrir kimar landsins standast þar ekki samjöfnuð.
Í myndinni í kvöld, sem hefst klukkan 20:30, segja þau Elísabet Jóna Sólbergsdóttir og Úlfar Thoroddsen frá leiðunum um þessa margbrotnu náttúrugersemi sem þau þekkja jafn vel og lófann á sér.