Á næstu vikum verða fyrstu íbúðir í nýjum verkamannabústöðum auglýstar til leigu. Bjarg íbúðafélag, sem Alþýðusambandið og BSRB stofnuðu, stefnir að því að 450 íbúðir verði komnar í byggingu hjá félaginu í lok ársins. Unnið er að útfærslu úthlutunarreglna. Um er að ræða fyrsta byggingaverkefni Bjargs.
Frá þessu segir á frétt RÚV í dag.
Fólk þarf þó að vera félagar í BSRB eða í ASÍ og hafa tekjur á vissu tekjubili til að geta sótt um íbúðirnar. Þannig má einstaklingur hafa að hámarki fimm milljónir í árstekjur. Leigjendur geta verið eins lengi og þeir kjósa, segir í fréttinni og er það haft eftir Árna Stefáni Jónssyni varaformanni Bjargs.
Möguleiki er að verði umsóknirnar margar gæti þurft að draga um það hverjir fá úthlutað leiguíbúð.
Bjarg stefnir að því að byggja rúmlega eitt þúsund íbúðir til viðbótar á næstu þremur til fjórum árum.
Fyrsta skóflustungan að byggingu með 155 íbúðum var tekin á föstudag. Árni Stefán Jónsson er varaformaður Bjargs.