„Nýir jólasveinar og jólastúlkur eru á leið til byggða. Þau eru væn og græn og hverra manna hugljúfust. Þau læðast inn í fjárhúsin og frelsa þar fé, hvísla að hænunum og klappa jólakettinum sem er steinhættur að éta börn og malar nú sáttur upp við ofn.“
Þannig hljómaði tilkynning frá Samtökum grænkera á Íslandi um að nýir jólasveinar og jólastúlkur væru á leið til landsins. Að vísu er ekki talað um jólasveina heldur jólaverur. Þar er enginn kjötkrókur sem elskar hangilæri. Þess í stað er að finna í hópi jólavera Lambafrelsi sem eins og nafnið gefur til kynna frelsar kindur úr fjárhúsum.
Egill Helgason fjallar um jólaverur veganista á Eyjunni. Þar segir hann:
„Sum nöfnin eru athyglisverðari en önnur. Það er til dæmis Ljúfur. Þetta virðist koma í staðinn fyrir Stúfur. Er það vegna þess að nafnið Stúfur getur verið þungbært, það er þá skírskotun til þess hvað hann er smár – og telst vera það sem kallast sizeism á ensku,“ segir Egill og bætir við:
„Svo er það Vökvareykir. Það er væntanlega veipandi jólavera – ekki kemur hún í staðinn fyrir jólasveina sem reykja, ekki hafa verið neinar spurnir af því, en hins vegar eru jólasveinar sem eru sólgnir í reykt kjöt. En er kannski verðið að hvetja börn til veips?“
Þá kemur E-efnagægir til byggða 20. desember og um hann segir Egill:
„Hann les væntanlega utan á matvæli, kynnir sér efnainnihald þeirra, og kemur í veg fyrir að þau láti ofan í sig óþverra. Hummusgerður gæti verið svarið við Skyrgámi – því auðvitað er skyr ekki vegan.“
Egill hefur þá einnig tekið eftir að framganga veganista hafi vakið reiði og hreinsun þeirra á nöfnum jólasveinanna líkt við hatramma umræðu við bann við kirkjuferðum barna á jólunum. Það er líka mikilvægt að taka fram að margir hafa einnig hrósað þessu framtaki. Egill segir að lokum:
Á einum stað sá ég spurt hvort þetta væri að verða eins og í Saudi-Arabíu hjá okkur? Það er fólk í athugasemdakerfum sem hefur miklar áhyggjur af þessu, sbr:
Hvaða fokking bull er þetta??? Er þetta veganlið algjörlega ónýtt í hausnum? Fær ekkert að vera í friði fyrir þeim lengur, þarf endalaust að setja út á allt? Ég er virkilega farinn að hafa áhyggjur af þessu veganiði, var ekki að skipta mér af þeim en nú er komið nóg, orðin ansi uppáþrengjandi og frekjan að drepa þetta lið. Er ekki að sjá okkur kjötætur vera að troða okkar skoðunum endalaust upp á þetta lið en þau virðast finna mikla þörf fyrir að troða sínum skoðunum upp á okkur?
Nöfn vegan-jólaveranna eru eftirtalin: Lambafrelsir, Hænuhvísla, Ljúfur, Þarasmetta, Hafraþamba, Berjatína, Tófúpressir, Hummusgerður, Vökvareykir, E-efnagægir, Raknarefur, Plöntuklókur og Smjörlíkir
Lambafrelsir kemur síðan eins og áður segir fyrstu til byggða. Um hann er búið að yrkja eftirfarandi vísu:
Lambafrelsir er fyrstur, lætur ei neitt í té.
Hann laumast í fjárhúsin og frelsar þar fé.
Hann vill kemba ánum, þá er þeim ekki um sel,
því ullin er svo þæfð, það gengur nú ekki vel.