21 í kvöld: stytta þarf skilnaðartímann

Jón Steindór Valdimarsson, lögfræðingur og þingmaður Viðreisnar undirbýr nú frumvarp ásamt fleirum um að stytta tímann þegar fólk klárar lögskilnað. Í dag tekur það lágmark tvö ár.

Hann segir að þegar litið sé til þeirrar staðreyndar að ofbeldismenn geti tafið skilnað við núverandi skipulag þá sé fólki haldni föngnu í óbærilegu hjónabandi, jafnvel svo árum skipti. Í dag þurfi að treysta fólki til að ákveða sjálft hvenær það vilji skilja og að það þurfi ekki að gefa hinu opinbera upp neinar ástæður. Vilji þess eigi að vera virtur og fólki treyst.

Af tilvonandi frumvarpi má segja að í dag lykti kerfið af forræðishyggju sem eigi ekki við og sé gamaldags og barn síns tíma.

Jón Steindór er í viðtali hjá Lindu Blöndal í þættinum 21 í kvöld.