Styrmir vill leggja niður forsetaembættið og leifar „gamla Íslands“

Styrmir Gunnarsson, samfélagsrýnir og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins, telur nauðsynlegt fyrir Ísland að losa sig við leifar frá dönsku konungshirðinni.

Hann veltir upp spurningum um stefnur og gengi flokkanna fyrir kosningar í grein sinni í Morgunblaðinu.

Óþægilegt bil á Gamla Íslandi

Segir hann óþægilegt bil milli kjör­inna full­trúa og al­mennra borg­ara.

„Um leið og ein­stak­ling­ur er kom­inn á þing tel­ur hann sig ekki leng­ur eiga er­indi við fólkið í land­inu fyrr en nálg­ast næstu kosn­ing­ar. Frá þessu eru und­an­tekn­ing­ar en þær eru fáar. Það væri gagn­legt að þing­menn ræddu þetta í kosn­inga­bar­átt­unni og út­skýrðu þetta frá sínu sjón­ar­miði.“

Telur hann þetta leifar frá „gamla Íslandi“ sem voru influttar frá stettaskipta þjóðfélaginu í Evrópu. „Þegar hátt­sett­ir emb­ætt­is­menn töldu sig yfir aðra hafna.“

Er nú kominn tími til fyrir Íslendinga að losa sig við þessar leifar sem eigi ekkert erindi hingað, segir Styrmir. Sömuleiðis sé forsetaembættið leifar af þessu gamla Íslandi sem ætti að leggja niður að hans mati.

„Það er bein­lín­is hlægi­legt að það skuli hafa verið flutt­ir inn til Bessastaða hirðsiðir frá dönsku kon­ungs­hirðinni!“