Styrmir spáir dauða samfylkingarinnar

Styrmir Gunnarsson, áhrifamaður í Sjálfstæðisflokknum og ritstjóri Moggans til áratuga spáir Samfylkingunni dauða á árinu 2016.

Í nýjum pistli sem þegar hefur vakið nokkra athygli segir ritstjórinn fyrrverandi á styrmir.is að Samfylkingin sé að deyja sem flokkur. Og rökin:

„Fyrst og fremst þau að helztu talsmenn hennar hafa ekki lengur neitt að segja um pólitík. Þingmenn hennar geta að vísu haldi uppi málþófi á Alþingi en málþóf og málefnabarátta er tvennt ólíkt.“ (feitletrun Styrmis).

„Þessi tilvistarbarátta flokksins endurspeglaðist að einhverju leyti í formannskosningunni á síðasta landsfundi flokksins, þegar Árni Páll var endurkjörinn með eins atkvæðis mun. Þá skapaðist tómarúm í kringum forystu flokksins, sem enginn hefur reynt að fylla upp í. Og Árna Páli hefur ekki tekizt að beina flokknum inn á nýjar brautir. Það hafa heldur engar umræður farið fram á vettvangi flokksins, alla vega ekki fyrir opnum tjöldum, þar sem þessi staða er rædd.

Það ber dauðann í sér fyrir hvaða stjórnmálaflokk sem er að vandamál hans séu ekki rædd.“

Þá segir Styrmir að Björt Framtíð sé í svipaðri stöðu og Samfylkingin „en það skiptir minna máli vegna þess að hún vegur nánast ekki neitt í pólitísku samhengi. Formannsskiptin hafa engu breytt, þótt hinn nýi formaður Óttar Proppé segi ýmislegt athyglisvert.“

Þá segir ritstjórinn Framsókn spurningarmerki og um stjórnarflokkana báða segir hann:

„Þessi staða arftaka Alþýðuflokksins og tengdra fyrirbæra er athyglisverð ekki sízt vegna þess að stjórnarflokkarnir eiga við sín vandamál að stríða. Þeir geta að vísu státað af því, að hafa náð vissum árangri en veigamikil mál eru í óviðunandi stöðu eins og t.d.heilbrigðismál og málefni aldraðra og öryrkjaSjálfstæðisflokkurinn virðist fastur í fylgi, sem fyrir aldarfjórðungi taldist skelfilegt og hefur sama hátt á og Samfylkingin að ræða þann vanda eins lítið og hægt er.“

Lokaorð Styrmis:

„Erum við að upplifa hnignun og fall flokkakerfis 20. aldar?

Hafa viðhorf og viðfangsefni breytzt svo mjög að kalli á endurskipulagningu flokkakerfisins á 21.öld og jafnvel algera umsköpun þess?

Það gæti verið.“

Allur pistillinn hér.