Mikill titringur er í Sjálfstæðisflokknum vegna þriðja orkupakkans og virðist málið ætla að verða þingflokknum erfitt viðureignar. Afstaða hans virðist vera þvert á vilja stórs hluta flokksmanna. Að minnsta kosti ef marka má orð Styrmis Gunnarssonar, fyrrverandi ritstjóra Morgunblaðsins. Hann segir að Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Ölfusi sé framtíðarmaður í forystu flokksins og fagnar orðum hans um helgina þar sem Elliði setti slæma útkomu Sjálfstæðisflokksins í nýrri skoðanakönnun í samhengi við þriðja orkupakkann.
Morgunblaðið skýrir frá þessu í dag. Þar segir að Styrmir segi að þeir þingmenn Sjálfstæðisflokksins sem munu styðja þriðja orkupakkann muni ganga gegn vilja mjög stórs hluta flokksmanna. Styrmir leggur til að heimild til að afla undirskrifta 5.000 flokksmanna verði nýtt til að knýja fram atkvæðagreiðslu meðal flokksmanna um þriðja orkupakkann og segir ekki mikið mál að ná saman slíkum fjölda því mikil óánægja sé í grasrót flokksins.
„Ég vona að þingmenn átti sig á því að með því að samþykkja þennan orkupakka ganga þeir gegn mjög stórum hópi almennra flokksmanna.“
Er haft eftir Styrmi sem segist ekki hafa hugmynd um af hverju þingflokkurinn tekur afstöðu með orkupakkanum.
„Á síðustu tólf mánuðum hef ég heyrt í talsvert mörgum þingmönnum, bæði úr Sjálfstæðisflokki og Framsóknarflokki og svolítið úr VG. Ég verð mjög rækilega var við það hvað það hafa verið miklar efasemdir um orkupakkann hjá mörgum þingmönnum, allavega í Sjálfstæðisflokki og Framsóknarflokki. Jafnvel þótt þessir þingmenn gerðu ekkert annað en að hugsa um eigin hag, og þeir hafa vafalaust áhuga á því að sitja áfram á þingi, þá verður þetta ekki auðvelt mál fyrir þá í prófkjörum fyrir næstu kosningar, að hafa snúið baki við svo stórum hópi flokksmanna. Ég hef tekið eftir því að sama hvar ég kem, þá eru alltaf einhverjir sem draga mig út í horn og hvísla því að mér að þeir séu sammála því sem ég er að segja, en segja það ekki upphátt. Ég finn hvernig landið liggur í þessum flokki.“
Er haft eftir Styrmi sem segir Elliða Vignisson vera framtíðarmann í flokknum að margra mati.
„Eins og alltaf er í þessum flokki, þá ræða menn um framtíðina. Á undanförnum árum hef ég heyrt að í vangaveltum manna á milli um framtíðarforystu flokksins hefur hans nafn komið upp aftur og aftur. Þegar hann kemur fram með þessa skoðun, þá finnst mér það mikið fagnaðarefni af því að hann er greinilega framtíðarmaður í augum margra flokksmanna. Þess vegna vekur það enn meiri athygli þegar hann talar svona.”
Segir Styrmir og vísar þar til orða Elliða um helgina þar sem hann tengdi slæma útkomu Sjálfstæðisflokksins í nýrri skoðanakönnun MMR við orkupakkamálið. Elliði sagði að gjá sé á milli þingflokksins og margra í grasrótinni og þetta komi í ljós í skoðanakönnunum.
„Einhverjir virðast ekki treysta sér til að styðja Sjálfstæðisflokkinn áfram og hann er kominn undir 20%. Ég var lengi í íþróttum og fékk oft gula spjaldið. Þegar það gerðist reyndi maður að koma betur fram á vellinum. Þetta er gula spjaldið á okkur sjálfstæðismenn.”
Hefur Morgunblaðið eftir Elliða sem segir að nú sé verkefnið að brúa þetta bil.
„Ég trúi því og treysti því að bæði formaðurinn og utanríkisráðherra haldi vel utan um þetta mál og finni leiðina. Þeir eru hæfastir til þess.”
Er haft eftir Elliða sem segist styðja ráðherrana og treysti þeim og ætlist til að þeir leysi þetta mál.
„Þess vegna hef ég stutt þau frá upphafi og geri enn.”
Segir hann í Morgunblaðinu.