Styrmir: hvers konar samfélag er þetta eiginlega?

Kynningarherferð á vegum Unicef á Íslandi um helztu ógnir sem steðja að börnum stendur nú yfir. Þar kemur fram, að eitt af hverjum fimm börnum á Íslandi hefur orðið fyrir líkamlegu og/eða kynferðislegu ofbeldi fyrir 18 ára afmælisdag sinn. Á þetta bendir Styrmir Gunnarsson fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins í grein í sama blaði í dag. Styrmir gagnrýnir þar þingmenn sem vilja ítrekað auka frjálsræði í sölu áfengis. Styrmir segir:

„Rannsóknir sýna að í „... 8. – 10. bekk hafa að meðaltali 9,1% barna, þegar orðið fyrir líkamlegu eða kynferðislegu ofbeldi. Sú tala hækkar hratt, þegar komið er á framhaldsskólaaldurinn og er þá orðin 16,4%“. Og þá má spyrja: Hvers konar samfélag er þetta eiginlega?“

Þá vitnar Styrmir í skýrsluna en þar segir á einum stað: „Einstaklingar, sem verða fyrir kynferðislegu ofbeldi í æsku, fremur en á fullorðinsaldri, eru mun líklegri til að hafa leiðst út í neyzlu, óhóflega notkun áfengis, kynlífs eða annarra athafna sem skerða lífsgæði þeirra og trufla daglegt líf ...“.

Þá segir Styrmir:

„Þegar upplýsingar af þessu tagi koma fram um þá villimennsku sem hér er á ferð vaknar sú áleitna spurning, að hve miklu leyti áfengisneyzla komi hér við sögu.“

Telur Styrmir að yfirgnæfandi líkur séu á að áfengi komu verulega við sögu þegar kemur að heimilisofbeldi og það verði að taka á rótum hans, sem sé neysla áfengis og annarra fíkniefna. Styrmir segir að lokum:

„Í ljósi þessa má velta fyrir sér, hvernig sumum þingmönnum dettur í hug að leggja ítrekað fram tillögur á Alþingi um að auka frjálsræði í sölu áfengis og það í nafni frelsisins.

Þessar nýjustu upplýsingar Unicef um hvað heimilisofbeldi er víðtækt á Íslandi ættu að verða til þess að hér verði vitundarvakning um að svipta hulunni af einu af síðustu leyndarmálunum sem þjaka samfélag okkar vegna þess að auðvitað er staðreyndin sú, að enn er þagað í fjölskyldum um ofneyzlu áfengis fjölskyldumeðlima.“