Styrmir: hugmyndir um ný framboð - myndu uppskera í ríkum mæli í kosningum

Á kreiki eru hugmyndir um ný framboð til borgarstjórnar. Þetta segir Styrmir Gunnarsson, fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins, á heimasíðu sinni. Styrmir segir:

„Það er nokkuð ljóst af almanna umtali, að borgarstjórnarmeirihlutinn í Reykjavík á erfiða dagaframundan. Það er fyrst og fremst umferðaröngþveitið á höfuðborgarsvæðinu, sem þar kemur við sögu en jafnframt er ljóst að alla vega ímyndborgarkerfisins, þ.e. stjórnkerfis borgarinnar hefur versnað mjög.

Sumir almennir borgarar eru sannfærðir um að núverandi meirihluti muni bíða afhroð í næstu kosningum. Það er ekki endilega vísbending um að minnihlutaflokkarnirmuni njóta þess að öllu leyti, því að hér og þar eru á kreiki hugmyndir um ný framboð til borgarstjórnar.

Líklegt má telja að þeir flokkar eða framboð, sem leggja fram trúverðugar tillögur um lausn á umferðaröngþveitinu mundu uppskera í ríkum mæli í kosningum.“