Styrmi Gunnarssyni, fyrrverandi ritstjóra, eru afrek Vilhjálms Einarssonar, sem fékk silfurverðlaun í þrístökki á Ólympíuleikunum 1956, greinilega í fersku minni. Á Eyjunni er haft eftir honum að hann vilji láta reisa minnisvarða um hann á gamla Melavellinum. Vilhjálmur lést 28. Desember síðastliðinn, 85 ára að aldri.
„Það er eiginlega ekki hægt að lýsa því með orðum, hvílík áhrif þessir ungu menn allir höfðu á æsku þessa lands, þegar þeir fóru að vinna afrek sín á erlendri grundu,“ skrifar Styrmir þegar hann minnist Vilhjálms og fleiri fornfrægra íþróttamanna á borð við Gunnar Huseby, Finnbjörn Þorvaldsson og fleiri.
„Vilhjálmur Einarsson, er enn sá, sem náð hefur mestri viðurkenningu þeirra allra á alþjóða vettvangi. En þess sáust engin merki í persónulegri viðkynningu. Slík var hógværð hans,“ segir Styrmir.
„Þjóðin á að reisa þessum afreksmönnum öllum og táknmyndum sjálfstæðis okkar og lýðveldis verðugt minnimerki og finna því stað þar áður stóð Melavöllur.