Birgitta vel hæfur forsætisráðherra

Styrmir Gunnarsson, fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins, var í yfirgripsmiklu sjónvarpsviðtali við Hringbraut í beinni útsendingu í gærkvöld þar sem stjórnmálatíðindi síðustu daga voru tekin saman í þætti Ólafs Arnarsonar, Ólafs Ísleifssonar og Björns Þorlákssonar.

Styrmir var ómyrkur í máli og taldi tímabært að leggja forsetaembættið niður.

Þá sagðist Styrmir ekki sjá neitt því til fyrirstöðu að Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Pírata, gegndi stöðu forsætisráðherra í næstu ríkisstjórn.

Nánar verður fjallað um þetta mál sem og stöðuna í þjóðmálum landsmanna klukkan 21 í kvöld á Hringbraut þegar sýndur verður klukkustundar langur þáttur vegna atburðarásarinnar undanfarið sem líkt hefur verið við neyðarástand.