Í gær komst dómstóll að því að leigusali WOW air þurfi ekki að greiða skuld hins gjaldþrota félags við ríkisfyrirtækið Isavia. Því virðast skattgreiðendur, eigendur Isavia, sitja uppi með það tap sem verður. Á meðal kröfuhafa eru ásakanir um blekkingar og svik og endurskoðendur rannsaka nú það sem átti sér stað síðustu mánuði. Þetta kemur fram ítarlegri umfjöllun á Kjarnanum.
Þótt WOW air sé gjaldþrota þá eru enn margir þræðir í sögu félagsins óhnýttir. Nú virðist blasa við að Isavia, sem er í eigu íslenskra skattgreiðenda, muni tapa um tveimur milljörðum króna á því að veita félaginu fyrirgreiðslu og hluti þeirra fjárfesta sem keypti skuldabréf í útboði WOW air í september telja að þeir hafi verið blekktir.
Á meðan súrna eftirstandandi eignir WOW air dag frá degi og afar ólíklegt er orðið að af endurreisn þess verði.
Skuldabréfaútboðið sem var ekki eins og það sýndist
Þann 15. ágúst 2018 birti Kjarninn fjárfestakynningu sem norska verðbréfafyrirtækið Pareto Securites hafði útbúið fyrir WOW air. Þar var hægt að sjá nákvæmari upplýsingar um fjárhag WOW air en höfðu birst áður.
Forsvarsmenn Pareto voru ósáttir við birtinguna, og sendu tölvupóst til blaðamanns Kjarnans, þar sem þess var krafist að upplýsingarnar yrðu teknar tafarlaust úr birtingu. Ef það yrði ekki gert þá myndi Pareto grípa til viðeigandi lagalegra aðgerða.
Kjarninn benti á það í svari, að Pareto hefði sjálft birt kynninguna á opnu svæði á internetinu, og því væri krafa fyrirtækisins ekki viðeigandi. Auk þess væri það mat Kjarnans að upplýsingarnar ættu erindi við almenning og því yrði ekki orðið við því að taka upplýsingarnar úr birtingu. Eftir það heyrðist ekki meira frá Pareto.
Sú mynd sem þar var dregin upp var frekar dökk. WOW air átti augljóslega ekki nægt eigið fé til að takast á við þær áskoranir sem félagið var þegar að takast á við, og sannarlega ekki til að mæta þeim sem voru framundan. Eigið fé þess var komið undir fimm prósent í júní 2018.
Pareto hafði það hlutverk að ná í brúarfjármögnun fyrir WOW air þangað til að hægt yrði að skrá félagið á markað. Það átti að gera í gegnum skuldabréfaútboð. Til stóð að ná í 56 til 112 milljónir dala. Auk Pareto voru Arion banki og Arctica Finance ráðgjafar WOW air við framkvæmd skuldabréfaútboðsins.
Verulega erfiðlega gekk að loka skuldabréfaútboðinu, en það hafðist þó skömmu eftir miðjan september í fyrra. Alls náðist að safna 60 milljónum evra.
Fljótlega varð ljóst að það fjármagn nægði alls ekki til og þá hófust tilraunir til að finna kaupanda að WOW air. Icelandair fór tvívegis í viðræður um að kaupa félagið og viðræður við Indigo Partners stóðu yfir mánuðum saman. Hvorugur aðilinn taldi það þó á endanum skynsamlegt að fjárfesta í WOW air.
Verulega erfiðlega gekk að loka skuldabréfaútboðinu, en það hafðist þó skömmu eftir miðjan september í fyrra. Alls náðist að safna 60 milljónum evra.
Fljótlega varð ljóst að það fjármagn nægði alls ekki til og þá hófust tilraunir til að finna kaupanda að WOW air. Icelandair fór tvívegis í viðræður um að kaupa félagið og viðræður við Indigo Partners stóðu yfir mánuðum saman. Hvorugur aðilinn taldi það þó á endanum skynsamlegt að fjárfesta í WOW air.
Ítarlega úttekt er að finna á Kjarnanum.