„styrkur okkar liggur í samstöðunni“

Drífa Snædal, forseti Alþýðusambands Íslands (ASÍ), ritaði jólapistil á heimasíðu sambandsins í dag. Hún segir að það sé ekkert nýtt að takturinn sé misjafn, róttæknin í mismunandi skömmtum og aðferðirnar ólíkar innan hreyfingarinnar.

Í pistlinum segir Drífa m.a.: „Félagsmenn í aðildarfélögum ASÍ sem eru virkir á vinnumarkaði eru 120 þúsund talsins. Það er 60% af íslenska vinnumarkaðnum. Fyrir þessa félagsmenn vinnur úrvals fólk innan hreyfingarinnar, fólk sem er með hjartað á réttum stað, tilbúið til að berjast fyrir vinnandi fólk í stóru sem smáu. Eðlilega greinir fólk á um aðferðir í svo stórri hreyfingu en við eigum það öll sammerkt að hafa hagsmuni launafólks í fyrirrúmi.“

Hún víkur svo orðum sínum að samstarfi VR, Eflingar og VLFA í kjaradeilunni, sem félögin þrjú hafa í sameiningu ákveðið að vísa til ríkissáttasemjara: „Þegar samninganefndir ólíkra félaga eru með misjafnt mat á stöðunni er hreinlegast að leiðir skilji en það er alveg ljóst að kröfugerðirnar eru ekki breyttar og öll félögin hafa samþykkt þær og vinna út frá þeim. Styrkur okkar liggur í samstöðunni um kröfugerðirnar og um alvöru aðgerðir í þágu launafólks. Ágreiningur um aðferðir veikir okkur ekki. Við vinnum áfram sem ein heild að þeim málum sem ASÍ hefur haft forgöngu um, þ.e. stefnu í skattamálum, húsnæðismálum og stefnu um aðgerðir gegn félagslegu undirboði (réttara nafni glæpastarfsemi á vinnumarkaði), svo stóru málin séu nefnd.“

Drífa segir að stóra verkefni næsta árs séu betri kjör fyrir vinnandi fólk og sanngjarnari skipting verðmæta: „Það krefst þess að leyst verði úr húsnæðisvandanum og að breytingar á skattkerfinu verði þannig að allir leggi sinn skerf í sameiginlega sjóði. Það er löngu tímabært að láglaunafólk þurfi ekki að bera þyngstu byrðarnar á meðan þeir best settu eru stikkfrí. Kjarasamningarnir þurfa svo að endurspegla þá sjálfsögðu kröfu að fólk geti unnið fyrir sér án þess að ganga sér til húðar.“

Pistilinn í heild sinni er að finna á heimasíðu ASÍ.