Styrking krónunnar

Krónan var í miklum styrkingarham í nýliðinni viku eftir hæga byrjun í þessum mánuði. Krónan hefur styrkst um rúmlega 5% frá áramótum. Er það hraðari styrking en á sama tímabili í fyrra þrátt fyrir losun gjaldeyrishafta og sjómannaverkfall í ársbyrjun.

Mun meira flökt hefur verið á gengi krónu það sem af er ári en undanfarin ár. Kann það að setja peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands (SÍ) í nokkurn vanda næsta miðvikudag við að túlka áhrif gengisþróunarinnar á vaxtaákvörðun SÍ til skemmri tíma.

En svo er að sjá sem gengisþróunin hafi verið snar þáttur í vaxtaákvörðunum peningastefnunefndarinnar undanfarin ár.

Peningastefnunefnd hefur fjórum sinnum lækkað stýrivexti í þessari uppsveiflu. Ljóst er að lækkun stýrivaxta í fyrra réðs mjög mikið af gengisþróun krónunnar.

Gengisþróun krónunnar mun einnig ráða miklu um ákvarðanir peningastefnunefndar á þessu ári. Líkur eru á að krónan styrkist í sumar. Það ætti að verða stór þáttur í þeirri ákvörðun að lækka stýrivexti en ekki fyrr en næsta haust. 

En spáð er óbreyttum stýrivöxtum næsta miðvikudag. 

Meira um þetta er að finna í Morgunkorn Íslandsbanka í dag.

rtá

Nánar      www.islandsbanki.is/morgunkorn