Varnamálaráðherra Bandaríkjanna Jim Mattis sagði við fréttamenn í gær að engin hætta sé á að stríð brjótst út á Kóreskaganum.
Ráðherrann sagði að vissulega væru þessa flugskeytatilraunir ögranir við öll grannaríki Norður-Kóreu en hann bætti því við að allt kapp vær lagt á að finna aðrar leiðir til lausnar ágreiningi en vopnuð átök.
Fyrst og fremst væru Bandaríkin og þær grannþjóðir Norður-Kóreu sem þau eiga samskipti við að leita friðsamlegra leiða til að hafa áhrif á stjórnvöld í Norður-Kóreu.
Helst væri horft til diplómatískra lausna en ekki vildi Jim Mattis ræða hverjar þær væru. Ekki væri útilokað sagði hann að nota efnahagslegar þvingunarðagerðir en þó yrði þar farið af öllu með gát.
Bað ráðherrann fréttamenn um að gera ekki meira úr flugskeytatilraunum Norður-Kóreu en tilefni væru til. Ýkjur um þessa meintu stríðsógn væru aðeins vatn á myllu ríkisoddvita Norður-Kóreu.
Nánar www.uk.reuters.com