Stýrir 400 milljarða sjóðum

Tæplega þrettán milljarða fjármögnun var lokið fyrir helgi á fjárfestingasjóðnum SÍA III. Um er að ræða sjóð sem er dótturfélag Arion banka og rekinn af Stefni hf. Stefnir er stærsta sjóðastýringarfyrirtæki landsins með um 400 milljarða króna. Stjórnarformaður Stefnis er Hrund Rudolfsdóttir, forstjóri Veritas. Hrund sem er ein áhrifaríkasta konan í íslensku atvinnulífi verður í viðtali á Hringbraut í kvöld og ræðir meðal annars stöðu kvenna í atvinnulífinu.