Stýra þarf orkusölu

Þórdýs Kolbrún R. Gylfadóttir segir á Alþingi að unnið verði að heilstæðri orkustefnu fyrir Ísland á yfirstandandi kjörtímabili. Eftirspurn eftir raforku er nú meiri en framboðið og að óbreyttum mun sá munur vaxa en ekki minnka á næstu árum verði ekkert að gert.

Ekki liggur nú fyrir greining á þeirri stöðu eftir landsvæðum og ekki er til áætlun um stýringu orkusölu með kerfisbundnum hætti á ákveðna staði. Hér er um að ræða orkuöryggi því tryggja verður öryggi á heildsölumarkaði raforku. Skýra þarf ábyrgð og hlutverk aðila á þeim markaði. Kortleggja á heildsölumarkaðinn og finna vankanta á honum.

Ekki hefur verið unnið mat á líkum á kerfishruni á heildsölumarkaði með raforku. Er það eitt af þeim atriðum segir Þórdýs Kolbrún sem stjórnvöld mun kanna um orkuöryggi á heildsölumarkaði. Eins og fyrr segir þá er ójafnvægi í framboði og eftirspurn á raforku. Raorkuframleiðsla með olíu er ekki áformuð.   

rtá

Nánar www.althingi.is