Alþýðusamband Íslands gerir þá kröfu að KSÍ kjósi á ábyrgan hátt í þessu forsetakjöri FIFA sem fram fer á morgun með mannréttindi og hagsmuni farandverkafólks í huga.
Þetta skrifar Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ til Geirs Þorstreinsonar formanns KSÍ í dag, en hann segir mikið hafa skort á að FIFA beiti sínu mikla afli í baráttunni gegn nútíma þrælahaldi sem nú sé staðreynd í Katar í aðdraganda heimsmeistarakeppninnar í knattspyrnu 2022. Farandverkamenn sem þar vinnI við uppbyggingu leikvanga og hótela starfi og búi við skelfilegar aðstæður. "Er áætlað að nokkur þúsund þeirra muni láta lífið við störf sín í Katar áður en boltinn byrjar að rúlla á HM 2022. Ætlar KSÍ að beita sér í því að koma núverandi forseta, Sepp Blatter, frá völdum og að FIFA taki upp stefnu mannúaðar og réttlætis", spyr Gylfi í bréfi sínu og bætir við: "ASÍ er tilbúið að leggja KSÍ lið í þeirri baráttu ef knattspyrnuhreyfingunni hugnast slíkt samstarf."
Enn fremur skrifar Gylfi: "Í kjöri eru nokkrir frambjóðendur, þar á meðal núverandi forseti Sepp Blatter. Alþjóðasamband verkalýðsfélaga (ITUC ) hefur sett af stað herferð til að forða því slysi að Blatter verði endurkjörinn, enda hefur framkoma FIFA undir hans stjórn gagnvart farandverkafólki sem byggt hefur umgjörð stórmóta FIFA síðastliðin ár hreint út sagt verið ömurleg. Forseti ITUC, Sharan Burrow, hefur skrifað harðorða grein um málið. Alþýðusamband Íslands gerir þá kröfu að KSÍ kjósi á ábyrgan hátt í þessu forsetakjöri með mannréttindi og hagsmuni farandverkafólks í huga. Mikið hefur skort á að FIFA beiti sínu mikla afli í baráttunni gegn nútíma þrælahaldi sem nú er staðreynd í Katar í aðdraganda."