Aldís Hafsteinsdóttir, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga og bæjarstjóri í Hveragerði styður heilshugar áform um frekari sameiningu sveutarfélaga á Íslandi, en samgönguráðherra boðar róttækar aðgerðir í þeim efnum á næstunni.
Samkvæmt þeim áformum skulu engin sveitarfélög vera fámennari en 100 manns innan þriggja ára og engin fámennari en 500 manns innan sjö ára, en nú er helmingur íslenskra sveitarfélaga fámennari en 1000 íbúar.
Aldís segir í snörpu viðtali við Sigmund Erni í fréttaþættinum 21 á Hringbraut í kvöld að til að mæta auknum lýðræðis- og þjónustukröfum verði að efla sveitarstjórnarstigið með öllum ráðum - og þar megi sveitarfélögin sjálf ekki standa í vegi fyrir eðlilegri þróun; það sé ekki lýðræðislegt að fámennustu sveitarfélögin geti hindrað sjálfsagðar breytingar í þessum efnum á afmörkuðum byggðasvæðum hringinn í kringum landið.
Fréttaþátturinn 21 byrjar klukkan 21:00 í kvöld.