Sigríður Ingibjörg Ingadóttir þingkona Samfylkingarinnar sem var einu atkvæði frá því að verða næsti formaður Samfylkingarinnar í formannskjörinu síðdegis í gær segir niðurstöðu kosningarinnar sýna skýran vilja flokksmanna um breyttar áherslur í flokksstarfi og stefnu flokksins. Hún sagðist óska Árna Páli Árnasyni, sem verið hefur formaður flokksins í 2 ár, til hamingju með endurkjörið og liti svo á að saman færu þau í það verkefni að brýna stefnumálin og fella þau betur að kröfum almennings en verið hefði til þessa; engin ástæða væri til að bregðast við kjörinu með öðrum hætti en þeim að fylkja liði undir gunnfána flokksins.
Árni Páll hefur látið hafa það eftir sér í fjölmiðlum að eins atkvæðis munur í formannskjöri sé óþægilegur. Honum fyndist niðurstaða í kosningunni vera sérkennileg, en full ástæða væri fyrir sig að hlusta betur eftir því sem mætti laga í flokksstarfinu og stefnu flokksins.
Innan Samfylkingarinnar er útbreidd sú skoðun að formannsframboð Sigríðar Ingibjargar hafi verið löngu ákveðið fremur en að um skyndilega ákvörðun hennar einnar hafi verið að ræða daginn fyrir landsfund. Hún tilkynnti einmitt framboð sitt réttum sólarhring fyrir upphaf kjörs á fyrri degi landsfundarins og gaf Árna Páli þannig lítið sem ekkert svigrúm til að safna liði fyrir fundinn sem er reyndar fámennari en flestir síðari tíma landsfundir flokksins. Er ætlan margra sem hringbraut.is hefur sett sig í samband við innan flokksins að sá kjarni Reykjavíkurarmsins innan flokksins sem tefldi fram Guðbjarti Hannessyni gegn Árna Páli í formannskjörinu fyrir tveimur árum, þar á meðal stuðningshópur Jóhönnu Sigurðardóttur, hafi staðið að baki framboði Sigríðar Ingibjargar. Það sjáist best á því mikla fylgi sem hún fékk í gær; engin skyndileg ákvörðun hefði nokkrun tíma skilað henni slíkum stuðningi, þvert á móti liggi hér að baki mikill og ígrundaður undirbúningur "til að yfirtaka flokkinn og koma honum í réttar hendur," eins og einn heimildarmanna síðunnar orðaði það seint í gærkvöld.
Landsfundinum á Hótel Sögu er framhaldið í dag með málefnastarfi, en honum lýkur í kvöld með hátíðarkvöldverði og skemmtidagskrá.